Rannsóknir hafa sýnt fram á það að þegar þú teiknar mynd af þinni óska framtíð, ert með hana sýnilega og vinnur þig í áttina að henni á hverjum degi margfaldar þú líkurnar á því að þú náir markmiðum þínum.
Það er hins vegar líka staðreynd að lang flestir sem ég hef sagt frá þessu og segjast ekki kunna að teiknað en það er ekki rétt. Það þurfa nefnilega ekki að vera flóknar myndir eða tákn sem maður gerir við orðin sín til að þetta virki. Að láta það standa í vegi fyrir að nota aðferð sem skilar árangri er undarleg afsökun.

Okkur hættir til að bregðast á sama hátt við atburðum í lífi okkar. Til þess að vaxa og breytast þurfum við að skoða hvernig við bregðumst við ákveðnum aðstæðum og kannski breyta því hvernig við tökumst á við þær. Maður getur ekki bara brugðist við á sjálfsstýringu heldur velja hvernig við tökumst á við aðstæður í lífi okkar.
Manneskjurnar sem ná markmiðum sínum og gera breytingar í lífi sínu er þær sem vinna að því á hverjum degi t.d. með því að taka eitt lítið skref á hverjum degi.
Hvers vegna að sætta sig við minna en maður á skilið?
Ef þú telur að þú getir verið hamingjusamari, heilbrigðari og lifað innihaldsríkara lífi, hvers vegna þá að halda áfram á sömu braut?
Ég hef verið á þeim stað í lífinu þar sem ég vissi innst í hjarta mínu að væri ekki rétti staðurinn fyrir mig. Það tók mig hins vegar nokkur ár að bregðast við því og gera eitthvað í málinu. Mér hundleiddist það líf sem ég lifði, var orðin útbrunninn og búin að gefa allt of mikið af mér. Ég vissi líka að ég ætti eitthvað betra skilið.
Sem betur fer fann ég leið út úr mínu frekar leiðinlega lífi yfir í mun innihaldsríkara og hamingjusamara lífs.
Þess vegna með hálfgerða þráhyggju fyrir því að finna bestu leiðirnar til að ná markmiðum mínum til að lifa góðu lífi.
Það sem maður þarf að gera er að átta sig á því hver maður er og hvað maður er ánægður með í sínu lífi og hvað ekki. Síðan bregst maður við því sem betur mætti fara og tekur skrefin til að breyta því. Ég gerði það og það skilaði mér frábærum árangri.
Með kærleikskveðju
Gunna Péturs
