Þessa körfu gerði ég fyrir mörgum árum og ég hef notað hana fyrir ýmislegt og í dag breyttist hún í berjakörfu!

Ég ákvað að fara í berjamó í dag, af því að ég þurfti að kyrra hugann og koma skikk á allar hugmyndirnar mínar. Það er áskorun að vera með ofvirkan sköpunarkraft en gaman að takast á við það. Það er líka áskorun, sem hægt er að vinna með, ef maður fær ekki nógu margar hugmyndir eða finnst maður ekki vera skapandi.

Vissir þú það að sköpunarkrafturinn er eins og vöðvi? Þú getur nefnilega haft áhrif á það hvað hann er virkur, með því að gera alls konar æfingar til að styrkja hann. Hljómar undarlega en það er alveg satt. Jafnvel þó þú haldir að þú sért bara alls ekki skapandi á nokkurn skapaðan hátt. Treystu mér, þú getur bætt úr því með því að örva sköpunarkraftinn sem er innra með hverri einustu manneskju. 

Lærðu efla sköpunarkraftinn með þessum 7 einföldu ráðum og niðurstaðan mun koma þér á óvart!

Skoðaðu áhugamálin þín

Hvort sem það eru listir, vísindi eða tölvuleikir þá þarftu að vita hvað raunverulega vekur áhuga þinn. Til þess að þessi ástríða og sköpun sé ávísun á nýjar og frumlegar hugmyndir. Ímyndunaraflið og sköpunarkrafturinn er meðfæddur hæfileiki sem við þurfum að virkja til að það nýtist okkur sem best

Dagdraumar

Leyfðu þér að dreyma dagdrauma um það sem þér finnst skemmtilegast að gera, eins og þú sért nú þegar að framkvæma það. Sjáðu þig fyrir þér í þeim raunveruleika. Ef við látum það ekki eftir okkur að dreyma um það sem okkur langar til að upplifa eða gera þá höldum við aftur af sköpunarkraftinum og blokkum hann.

Fáðu þér kríu

Hugmyndavinna krefst orku sem streita og svefnleysi kemur í veg fyrir. 20 mínútna kría eða “power nap” hjálpar þér að ýta á endurstillingar hnappinn. Hvíldur hugur er móttækilegur fyrir nýjum hugmyndum, sérstaklega eftir stuttan draum.

Komdu þér út

Að vera úti í náttúrunni hjálpar heilanum að virka á skilvirkari hátt þar sem náttúran býður upp á endalausan innblástur, OG að ganga í náttúrunni eykur jákvæð boðefni í heilanum sem róa þig og hjálpar þér við að tengjast.

Teiknaðu eitthvað

Teikning hjálpar til við að örva sköpunarkraftinn vegna þess að við erum að búa til eitthvað úr engu, það hjálpar til við að örva þann hluta heilans sem vinnur úr upplýsingum.

Gerðu eitthvað öðruvísi

Gerðu hluti sem eru nýir og krefjandi fyrir þig þannig að heilinn þinn þurfi að hugsa þá á nýjan hátt. Bara það að breyta einföldum venjum þínum, eins og hvað þú drekkur á morgnana eða leiðirnar sem þú ferð til að komast í matvöruverslun eða vinnustað mun hjálpa þér að ræsa og byggja nýjar taugaleiðir.

Virkjaðu skynfærin 

Notaðu öll skynfærin þegar þú vilt vera skapandi. Mér finnst gaman að hugsa um ákveðna senu sem fær mig til að vera róleg og ímynda mér síðan hvernig það myndi hljóma, lykta, smakka og líta út til dæmis. Þú getur líka lokað augunum eða verið með eyrnatappa svo heimurinn trufli þig við einbeitinguna.

Ekki vera hrædd við að gera tilraunir með nýjar hugmyndir og biðja um endurgjöf frá öðrum þegar þörf krefur!

Vonandi getur þú nýtt þér eitthvað af þessum ráðum!

Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan ef þú vilt fá póst þegar ég skrifa pistla eða set inn tilboð um námskeið.

Með kærleikskveðju

Gunna Péturs

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *