Hvaða plöntur get ég notað í vefnað?

Það er fátt sem gleður körfugerðarkonuna meira en að prófa efnivið sem hún vissi ekki að væri hægt að nálgast á Íslandi eða minnsta kosti ekki bara rétt í bakgarðinum. 

Þegar ég er á göngu úti í náttúrunni, eða bara um hverfið mitt, er ég alltaf að horfa í kringum mig og kanna möguleikana á því hvort einhver planta henti til körfugerðar.

Eins og sumir vita kannski þá hef ég alveg fáránlega mikinn áhuga á að nýta það sem náttúran gefur okkur til að skapa allskonar mis nýtilegt en það er heldur ekki markmiðið í öllum tilfellum.

Það eru nefnilega lýgilega margar tegundir sem vaxa á Íslandi og hægt er að nota á mismunandi vegu til sköpunar

Með því að flokka plöntur eftir eiginleikum þeirra getur hjálpað þér að ákvarða hæfi þeirra til körfugerðar.

Blóm

Plöntur sem eru með löng, mjó lauf sem bjóða upp á mikinn sveigjanleika og langar trefjar, eru  tilvaldar til vefnaðar. Þetta geta verið allskonar laukar sem vaxa í garðinum eins og túlípanar og krókusar, svo eitthvað sé nefnt. Svo er það sverðliljan sem vex í tjörnum. Þessi lauf eru tilvalin til að snúa band úr og að nota sem ívaf í rammakörfur.

Greinar og börkur

Það er raunverulega hægt að nota allar greinar sem maður getur beygt auðveldlega án þess að þær bresti. Flestar víðitegundir eru góður kostur og er körfuvíðirinn bestur. Aspargreinar, nýjar greinar, eru líka góðar sérstaklega til að gera hringi en þá getur verið gott að afbarka þær. Þá er hægt að nota mjúkar greinar frá ávaxtatrjám og vínviður er frábær efniviður ef þú getur komist í hann.

Börkurinn er skemmtilegt efni sem hægt er að leika sér með en þarf að hafa soldið fyrir því að ná í hann og verka. Best er að vinna með sem beinastar greinar.

Þá er einnig hægt að nota þistil en hann þarf líka að vinna soldið svo hægt sé að nota hann.

Gras

Þessi flokkur er okkur mjög hliðhollur hér á Íslandi því við höfum mikið úrval af grastegundum sem hægt er að nota. Gras er hægt að snúa í band eða nota sem ívaf í körfur.

Margar tegundir má finna í votlendi eða mýrarsvæðum og veita margs konar áferð og fjölbreytta liti. Eins og vatnastör sem er eitt af mínum uppáhalds.

Melgresi er mitt uppáhalds enda mjög auðvelt að safna því og auðmeðhöndlað.

Stofuplöntur

Og veistu hvað? Þú getur jafnvel ræktað og notað pottaplöntur sem er mjög hentugt þegar maður býr á Íslandi. Drekatré og slíkar plöntur eru tilvaldar og þá safnar maður bara blöðunum þegar þau sölna og nota þau þegar maður hefur fengið nægan efnivið.

Allt sem er mjúkt hefur í sér trefjastrengi er hægt að nota.

Það er mjög gaman að prófa sig áfram með mismunandi efnivið enda eigum við ógrynni af ónýttum efnivið í náttúrunni sem hægt er að nálgast á einfaldan hátt, hvort sem það er í höfuborginni eða út um landsbyggðina.

Með því að fylgjast með plöntunum í kringum þig geturðu fundið viðeigandi efni fyrir körfuverkefnin þín. Farðu því í göngutúr um hverfið þitt og hafðu augun opin gagnvart plöntum sem gætu komið til greina. 

Í næsta pistli kenni ég þér svo að þurrka og verka plöntur og greinar til að undirbúa sköpunina!