Við setjum okkur markmið og byrjum að framkvæma því við viljum jú öll ná árangri, ekki rétt?

Stundum náum við ekki markmiðum okkar – eða að minnsta kosti ekki eins og við höfðum séð þau fyrir okkur.

Tökum sem dæmi að þitt markmið sé að skrifa bók, missa nokkur kíló, komast í betra form eða finna hinn eina sanna lífsförunaut. Það þýðir að þú þarft að gera það að venju að skrifa á hverjum degi, hreyfa þig og huga að mataræðinu eða fara út á meðal fólks allt eftir því hvert þitt markmið er.

Það getur verið erfitt og snúið að breyta venjum, jafnvel þó að markmiðin séu þín og þér finnist mikilvægt að ná þeim.

Kannski þarft þú að fara fyrr á fætur til að hafa tíma til að skrifa bókina en þegar klukkan hringir þá af gömlum vana slekkur þú á henni eða snúsar og sefur lengur. Þú fékkst þér heilsusamlegan kvöldverð, seinna um kvöldið ferðu að finna fyrir hungri og þá laumastu í snakkpokann sem er inni í skáp. Þig langar af öllu hjarta að finna lífsförunaut sem þú getur átt í heilbrigðu og ástríku sambandi við en tilhugsunin um að hitta ókunnugt fólk eða nota stefnumóta síður fyllir þig ótta og óöryggi. Það er miklu auðveldara að kveikja bara á sjónvarpinu og horfa á einhverja góða mynd eða þáttaröð. 

Rannsóknir hafa sýnt fram á að það tekur að meðaltali um 66 daga að breyta eða búa til nýja venju í lífi sínu. Það er lengri tími heldur en þú hélst, er það ekki?

Þegar maður upplifir að það er ekki allt að ganga jafn vel og maður hugsaði sér við að skapa og lifa eftir nýju venjunni og áformunum þá missir maður oft móðinn. Sérstaklega ef maður passar sig ekki á neikvæðu hugsununum sem geta poppað upp eins og “ég get þetta ekki” eða “mér er bara ætlað að vera ein” eða “ég mun aldrei komast í gott form….

Hvað ef ég segði þér…..

Það sem hægt er að setja í fyrsta sæti yfir það sem heldur aftur af þér við að ná markmiðum þínum er það hvernig þú hugsar og gömul hugsanamynstur sem maður dettur í.

“Ég skrifaði niður markmiðin mín og byrjaði að vinna mig í áttina að þeim, hvers vegna næ ég þeim ekki?” Það er sem sagt heilinn í þér sem heldur að það sé ekkert að gerast. Heilinn í þér er forritaður til að leita eftir því sem er ekki að virka en ekki hvað virkar. Ef þú hlustar á þessi skilaboð þá setur þú einfaldlega markmiðin þín ofan í skúffu og gefst upp. Því þú leyfir hræðslunni eða neikvæðu hugsununum að taka yfir.

Fólk sem hefur ítrekað náð árangri með að ná markmiðum sínum mun segja þér að til þess að ná markmiðum þín þarftu að hafa eftrifarandi:

Hvatning og hrós ef ekki frá öðrum þá bara frá okkur sjálfum drífur okkur áfram og ef við gleymum því er hætta á því að maður detti aftur í sama farið og markmiðin hverfi út í veður og vind.

Stöðug, einbeitt athygli og fyrirhöfn er nauðsynleg fyrir þig til að skapa breytingar og gerir þér kleift að endurforrita þig og breyta venjum til þess að verða sú manneskja sem þú vilt vera og ná markmiðum þínum.

Það þýðir að þú tekur fulla ábyrgð á sjálfri/sjálfum þér bæði andlegri og líkamlegri heilsu.

Hvað getur þú gert strax í dag til að lifa hamingjusamara og skemmtilegra lífi þar sem þú getur lifað draumana þína?

Með kærleikskveðju

Gunna Péturs

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *