Konan á bak við síðuna

Ég er Gunna Péturs, eigandi GéPé -handverk en það er nafnið sem ég nota í kringum veflistina mína.

Ég er móðir, náttúruunnandi, áhugamanneskja um loftslagsmál og umhverfisvernd, körfugerðakona, ferðalangur og kennari. 

Ég kem frá kynslóðum skapandi kvenna og hef það í blóðinu að vera alltaf að skapa eitthvað, sauma, prjóna, vefa og taka myndir.

Ég ákvað fyrir nokkrum árum að taka mér frí frá fastri vinnu, ferðast og byrja að njóta augnabliksins til að finna aftur Gunnuna sem ég var búin að missa sjónar á.

 

Ég losaði mig við flesta hluti mína og byrjaði að ferðast einn með lítinn bakpoka og myndavélina mína. Tilgangurinn með því var að finna mitt sanna sjálf aftur.

 

Hér er hægt að lesa um ferðalagið.

 

Ég held einnig úti fréttasíðunni kolefnislosun.is þar sem ég og félagi minn birtum fréttir af loftslagsmálum á mannamáli.

 

Körfugerðin

Ég kynnist körfugerð fyrst fyrir 40 árum og hef síðan þá verið heilluð af þessari tegund sköpunar.

Ég lærði fyrst körfugerð hjá Margréti Guðnadóttur í kringum 1980, þegar ég, mamma og systir mín skelltum okkur á námskeið hjá henni.

Árið 2016 sótti ég námskeið í suður Frakklandi hjá dönskum körfugerðarmeisturum þeim Evu Seidenfaden og Ane Lyngsgaard.

Þar lærði ég meðal annars að vinna með trjábörk og gera kröfur með fléttuaðferð.

Ég hef einnig verið óþreytandi að soga í mig alls konar fræðslu og má segja að ég hafi verið óstöðvandi í upplýsingaleit og sjálfsnámi.

Langar þig að læra að vinna með efnivið úr náttúrunni?