“Það þarf fólk eins og þig fyrir fólk eins og mig” söng Rúnar Júl. hér um árið. Datt þetta lag allt í einu í hug þegar ég var að skrifa þennan pistil sem fjallar ekkert alveg um það sama og þó. Fékk það bara á heilann eins og maður segir.

Mér finnst svo frábært hvað fólk er mismunandi og hvernig maður tengir strax við suma á meðan aðrir líða framhjá manni.

Ég sakna þess að til dæmis rekast ekki á síðhippann sem bjó í hinni blokkinni minni. Hann var svo krúttlegur og kammó við mig þó að konan hans væri frekar geðstirð og önug bæði við hann og mig. Hún var oft að skammast í kallgreyinu svo það buldi um allan garðinn. Hún var heldur ekkert glöð þegar ég þurfti að láta opna fyrir mig garðinn til að sækja hjólið mitt, eftir að ég flutti. Kallinn var alveg á hjólum í kringum mig en kellinginn strunsaði í burtu og kallaði í sífellu eitthvað til kallsins sem var að reyna að flýta sér við að hjálpa mér. Svo voru það frakkarnir á móti geðslegasta fólk sem alltaf settist út í sólina á sama tíma dags og sat þar klukkutímum saman og las. Ekki má gleyma spænsku konunni sem bjó í endanum. Hún fór reglulega og týndi upp laufin við sundlaugina og skrifaði stundum bréf til húsvarðarins um hvað mætti betur fara og hengdi þau upp hér og hvar í garðinum. Í öðrum íbúðum voru skammtímagestir alltaf ný og ný andlit í hverri viku, það var meira svona fólk sem leið framhjá.

Mitt helsta áhugamál er og hefur örugglega alltaf verið að að skoða fólk sem ég hitti á leið minni gegnum lífið og reyna að átta mig á því.

Þetta á ekki bara við um mig því það er ekki komið til af neinu að það eru til óteljandi aðferðir við að greina hvernig týpur við erum. Því hljóta margir hafa gaman af því að spreita sig á þessum persónuleikaprófum enda getur þetta verið hin besta skemmtun.

Ég rakst á þetta, hér fyrir neðan, fyrir nokkrum árum, og setti þetta fram á öðrum stað en ákvað að henda þessu hér inn aftur enda fullgilt ennþá.

Þetta er sem sagt einföld greining á týpum, sem mér finnst er skemmtileg og er örugglega ekkert verri eða óáreiðanlegri en hver önnur. Hún gengur út á það að greina týpur eftir því hvaða form þeim hugnast best eða höfðar mest til þeirra og gæti heitað:
Ferningur, ferhyrningur, þríhyrningur, hringur eða óreglulegt strik!

Þetta virkar þannig að þú teiknar þessi form á blað og velur síðan það form sem hentar þér best, finnst fallegast eða höfðar til þín á einhvern hátt.

Ég skora á þig!

Nú er bara að prófa og vera heiðarleg/ur og fyrst og fremst að skemmta sér yfir þessu. Greiningin er svo hér, bannað að kíkja áður en þú prófar þetta 

Góða skemmtun!

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

Nú er komið að úrstlitastundu hvaða form ertu eða hvernig týpa?

Ferningurinn

Ferhyrningurinn:

Þríhyrningurinn:

Hringurinn:

Óreglulega stirkið:

Fengið að láni hjá Susan Dellinger P.hd.”Communicating Beyond Our Differences”

með kærleikskveðju

Gunna Péturs