Ég ætla að deila með ykkur 10 atriðum sem mér finnst ógeðslega mikilvæg til árangurs. Þetta eru einföld atriði sem þú getur valið að taka til þín eða ekki. Mér finnst þau mikilvæg af því að þau er svo mikið “common sence” það eru nefnilega þessi augljósu og einföldu atriði sem skipta sköpum ef mér á að líða vel í mínu lífi.
1 ) Að finna sína fjöl
Fylgdu hjartanu, innsæinu og ástríðunni og þú er á góðum stað í lífinu og hefur fundið þína fjöl. Fjalirnar geta verið mismunandi eftir tímabilum í lífi þínu því það má breyta um og taka beygju á lífsins vegi.
2) Að vera forvitin
Prófaðu nýja hluti og spurðu spurninga. Að vera forvitin leiðir mann á nýjar slóðir í lífinu sem þroska mann sem einstakling. Svo er svo skemmtilegt að vera forvitin og svo þarfnast sköpunarþörfin forvitni til að blómstra en ekki ótta við það óþekkta.
3) Að horfa inn á við
Það er ekki öllum að fara líka við þig og það sem þú gerir, það er allt í lagi. Horfðu inná við og haltu áfram að leika þér og gera það sem þér finnst mikilvægt.
4) Það er ekki alltaf jafnvægi í lífinu
Ekki búast við því að það sé alltaf jafnvægi á öllum þáttum lífsins því það er útilokað í mannlegum raunveruleika. Stundum er jafnvægi og stundum ekki það er bara eðlilegt.
5) Að upphefja ekki mistök
Við gerum alls konar mistök í lífinu, ekki velta þér upp úr þeim, lærðu af þeim. Ég er snillingur í að rífa mig niður og velta mér upp úr því hvað ég hefði átt að gera öðruvísi eða segja. Ég þarf stanslaust að minna mig á að hætta því af því það gerir ekkert gott fyrir mig. Hvað með þig?
6) Að finna sína braut
Mín leið hentar bara mér og mér einni því enginn getur verið ég nema ég. Það eru allar leiðir rétta í lífinu fyrir mismunandi einstaklinga það sem hentar einum hentar ekki öllum. Vertu opin fyrir því að þurfa að breyta leiðinni eða taka beygju.
7) Að finna innri frið
Vertu sátt með sjálfa þig og náðu ró á hugann, þegar maður nær ró á hugann gerist eitthvað óútskýranlega stórkostlegt. Mæli eindregið með hvers konar hugleiðslu sem leið til að finna innri frið.
8) Að vera eins og barn en ekki barnaleg
Leiktu þér eins og þegar þú varst barn og hafðu gaman af lífinu. Barnsleg einlægni er líka dásamlegur eiginleiki sem gott er að tileinka sér.
9) Að virkja snillinginn
Innra með okkur öllum býr snillingur, það þarf bara að gefa honum pláss og leyfa honum að koma út svo við blómstrum.
10) Ögraðu óttanum
Ekki heyja stríð við það sem þú óttast reyndu að nálgast það frá öðru sjónarhorni. Mér finnst gott að nálgast hann af forvitni og virðingu það er fyrir mér sterkara afl en óttinn sjálfur.
Með kærleikskveðju
Gunna Péturs
